TOEFLibt próf eru í nú boði hér á landi eftir nokkurt hlé. Tölvuskólinn-isoft-þekking býður upp á Rafræn TOEFL próf en skólinn er staðsettur í Skeifunni 11B, 2. Hæð.
Útlit er fyrir að HÍ taki að sér einhver skrifleg Toefl próf en best er að hafa samband við Alþjóðaskrifstofu Háskóla- stigsins varðandi hugsanleg próf www.ask.hi.is Skráning og allar nánari upplýsingar eru á www.ets.org.
Ekki eru haldin SAT próf á Íslandi.
ACT: Oftast er hægt að taka ACT prófið í stað SAT. Þetta á einnig við þá sem þurfa inntökupróf vegna íþróttatyrkja. Hægt er að taka ACT hjá Flensborg í Hafnarfirði á skráðum prófdögum ACT vefsins. Í einstaka tilfellum er hægt að taka það sem kallast "arranged testing". Sjá upplýsingar um ACT “Arranged Testing” Aðgætið að ACT prófin eru ólík SAT prófunum. Fyrirspurnir um prófin er hægt að senda með tölvupósti til ACT fyrirtækisins með því að smella hér.
GRE: Haldin hjá Háskóla Íslands, skráning með góðum fyrirvara. Sjá frekari uppýsingar á vef HÍ NÁNAR
GMAT: GMAT prófið er haldið hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík. Sími 520 9000. Um er að ræða tölvupróf, sem hægt er að komast í með litlum fyrirvara. Skráning er á www.mba.com. |