Forsíða E-mail Site in English
Forsíða
Fréttir
Tenglar
Um Fulbright
Styrkir
Námsráðgjöf
Opna alla flokka
Loka öllum flokkum
English site
Föstud. 3. Sept. 2010
Ný vefsíða Fulbright

Ný vefsíða fyrir stofnunina er væntanleg þann 8.september.
Upplýsingar um styrkina, umsóknarfrest o.þ.h. seinkar þessvegna örlítið en núverandi síða verður ekki uppfærð. Styrkirnir sem verða auglýstir eru: Almennir námsmannastyrkir, COBB og BOAS. Umsóknarfrestur fyrir þá verður 29.október nk.
Deildir háskóla eða annara stofnana geta sótt um að fá gestakennara en fresturinn til að sækja gestakennara er 23.október nk.
Við biðjumst velvirðingar á þessari töf á nýju síðunni en vonum að hún eigi eftir að nýtast ykkur betur.

Þriðjud. 5. Jan. 2010
Fulbright styrkþegar árið 2010

Islendingar sem hlutu styrk til framhaldsnáms frá Fulbright árið 2010.
AGLA FRIÐJÓNSDÓTTIR - verkfræði - M.Sc.
ANDRI EGILSSON - stærðfræði - Ph.D.
BERGLIND HÓLM RAGNARSDÓTTIR - félagsfræði - Ph.D.
EGILL TÓMASSON - verkfræði - Ph.D.
ÍVAR SNORRASON - sálfræði - Ph.D.
MAGNÚS ÞÓR SNÆBJÖRNSSON - Ph.D. sögu

SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR var tilnefnd til hinna virtu Boas verðlauna en styrkurinn er til framhaldsnáms í alþjóðalögum við Harvard háskóla.

Íslenskir fræðimenn sem hlutu rannsóknarstyrk frá Fulbright stofnuninni árið 2010:
ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON - tónlistarfræði
INGA DÓRA SIGFÚSDÓTTIR - félagsfræði
MAGNÚS GOTTFREÐSSON - læknisfræði
MAGNÚS TUMI GUÐMUNDSSON - jarðfræði

Bandarískir námsmenn sem hlutu styrk frá Fulbright árið 2010.
ANDREA L. SISSON - Design
JOSEPH DIRENZO - Engineering
NATHAN HALL - Music Composition
NICHOLAS B. SEPÚLVEDA - History
NICOLE SUSONNE PIETRANTONI - Painting and printmaking
ROBERT LYNCH - Anthropology
THOMAS ROBERT BENSON - Geology

Bandarískir fræðimenn sem hlutu styrk frá Fulbright árið 2010:
Dr. JYL JOSEPHSON - Political Science
Dr. KRISTÍN JÓNÍNA TAYLOR - Music
Dr. MARTHA KEAN RAYNOLDS - Geobotany

Miðvikud. 26. Ágúst 2009
Hlutu styrk frá Fulbright 2009
Frá vinstri: Anna, Helga, Oddný, Berglind, Elmar, Arnar


















Eftirtaldir Islendingar hlutu styrk til framhaldsnáms frá Fulbright árið 2009.
ANNA BJÖRK EINARSDÓTTIR, Ph.D. í bókmenntum
ARNAR BJÖRN BJÖRNSSON, Ph.D. í verkfræði
BERGLIND GÍSLADÓTTIR, Ph.D. í kennslufræðum
ELMAR GEIR UNNSTEINSSON, Ph.D. í heimspeki
ODDNÝ HELGADÓTTIR, Ph.D. í alþjóðasamskiptum

HELGA K. AUÐUNSDÓTTIR, LL.M í lögfræði, hlaut COBB Family Fellowship styrkinn að þessu sinni, til framhaldsnáms við Miami háskóla í Flórída.

VALGERÐUR SÓLNES var tilnefnd til hinna virtu Boas verðlauna en styrkurinn er til framhaldsnáms í alþjóðalögum við Harvard háskóla.

Bandarískir námsmenn sem hlutu styrk frá Fulbright árið 2009 eru eftirtaldir:
JOSEPH FRANCIS BATIR, jarðfræði
DEREK ROSS GALEY, þróun þéttbýlisskipulags
AMY MICHELLE REVIER, skúlptúr
JASON RANON URI ROTSTEIN, bókmenntir
KARINNA RUTH GOMEZ, fjöltækni
ELIZABETH GRACE TUBERGEN, skúlptúr


Eftirtaldir fræðimenn sem hlutu styrk frá Fulbright árið 2009:
Dr. SUSAN M. BOOKS, kennslufræði
Dr. JOHN JEFFREY ISELY, sjávarlíffræði
Dr. ASTRID E.J. OGILVIE, umhverfisfræði
Dr. MARK STUART WEINER, lögfræði

Þriðjud. 24. Feb. 2009
Ferðalag með Félagi Fulbright styrkþega
Styrkþegarnir Daniel, William, Kate og Adam.
Sunnudaginn 8.febrúar síðastliðinn bauð Félag Fulbright styrkþega á Íslandi þeim bandarísku styrkþegum sem eru hér í ár í ferðalag um Suðurlandið, en árlega eru um 12-15 Bandaríkjamenn hér á vegum Fulbright stofnunarinnar. Nánar um ferðina hér.

Þriðjud. 24. Feb. 2009
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Fulbright styrkþegi
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra er fyrrum Fulbright styrkþegi en Gylfi hlaut styrk frá Fulbright stofnuninni til doktorsnáms í hagfræði við Yale háskóla í Bandaríkjunum árið 1990.
Gylfi Magnússon lauk cand. oecon. prófi frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 1990 og doktorsprófi í hagfræði frá Yale University í Bandaríkjunum árið 1997. Hann hefur starfað í Háskóla Íslands frá árinu 1996 og hefur fengist við kennslu og rannsóknir í fjármálum og hagfræði. Hann hefur skrifað fjölda greina, tvær bækur og flutt fjölda fyrirlestra auk þess að sinna margvíslegum ráðgjafar- og stjórnunarstörfum. Hér eru tenglar í nokkrar greinar, fyrirlestra og annað efni eftir Gylfa sem er aðgengilegt á vefnum. Stofnunin óskar honum velfarnaðar í starfi.

Þriðjud. 21. Okt. 2008
TOEFL ibt próf
Íslendingum gefst nú kostur á að taka Toefl ibt (internet based test) hér á landi. Tölvuskólinn-isoft-þekking býður upp á þessi rafrænu Toefl próf frá og með 14. nóvember 2008. Skráning fer fram í gegnum vefinn www.ets.org og þar má einnig finna aðrar upplýsingar varðandi prófið og prófadaga. Frekari upplýsingar um almenn inntökupróf í bandaríska háskóla eru hér til hægri á forsíðu.

Miðvikud. 24. Sept. 2008
FÉLAG FULBRIGHT STYRKÞEGA STOFNAÐ Á ÍSLANDI
Nýkjörin stjórn félagsins: Þóra Arnórsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Haukur Ingi Jónasson, Elinóra Sigurðardóttir, Anna Linda Bjarnadóttir, Julian M. D‘Arcy og á myndina vantar Jón Karl Helgason.

















18.september 2008 var haldinn fyrsti aðalfundur hins nýstofnaða Félags Fulbright styrkþega á Íslandi, en félagið var stofnað þann 23.mars síðastliðinn. Félagið er opið öllum þeim sem hafa hlotið Fulbright styrk frá Fulbright stofnuninni á Íslandi, bæði Íslendingum og Bandaríkjamönnum. Fulbright stofnunin hefur verið starfrækt síðan 1957 og á þeim tíma hafa tæplega 1300 styrkþegar af báðum þjóðernum hlotið styrk.
Stofnunin hefur á síðasta ári reynt að hafa upp á styrkþegum í hið nýja félag og nú þegar eru um 180 félagar skráðir.

Ef þú ert Fulbright styrkþegi og hefur ekki skráð þig í félagið, gefst þér kostur á því að skrá þig með því að senda okkur tölvupóst.

Þriðjud. 29. Júlí 2008
Átta Íslendingar hlutu Fulbright styrk til framhaldsnáms árið 2008
Á myndinni eru styrkþegarnir ásamt Robert Domaingue, stjórnarmanni hjá Fulbright stofnun og Láru Jónsdóttur framkvæmdastjóra.
Í ár hlutu átta Íslendingar Fulbright styrk til framhaldsnáms í Bandaríkjunum og halda þau brátt utan til náms. Móttaka þeim til heiðurs var haldin á heimili Neil Klopfenstein, varasendiherra Bandaríkjanna á Íslandi þann 30.júlí síðastliðinn.










Þeir sem hlutu styrk í ár eru:
Benedikt Skúlason, Verkfræði við Columbia University í New York,
Berglind María Tómasdóttir, Tónlist við University of California, San Diego
Björn Leví Gunnarsson, Tölvunarfræði við Brandeis University, Waltham
Gunnar Þór Pálsson, Verkfræði við Boston University
Hörður Kristinn Heiðarsson, Verkfræði við University of Southern California í L.A.
Kári Helgason, Stjörnufræði við University of Maryland, College Park
Sæmundur Ari Halldórsson, Jarðfræði við University of California, San Diego
Ólafur Ari Jónsson, Lögfræði og hlaut hann einnig hinn eftirsótta Boas styrk til náms í lögum við Harvard háskóla.


Mánud. 23. Júní 2008
Cobb Partnership Award
Á myndinni má sjá Charles Cobb og sendiherra Bandaríkjanna Carol van Voorst með verðlaunahafa þessa árs og fjölskyldu hans.
10.júní síðastliðinn var haldin móttaka í bandaríska sendiráðinu til heiðurs K-C Tran þar sem honum var veitt viðurkenningin “Cobb Partnership Award”. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og sér stjórn Fulbright stofnunarinnar um valið hverju sinni.
MEIRA >>

Þriðjud. 6. Maí 2008
Félag Fulbright styrkþega á Íslandi var formlega stofnað 25. mars síðastliðinn
Félag Fulbright styrkþega á Íslandi var formlega stofnað 25. mars síðastliðinn. Markmiðið er að stuðla að og efla samskipti allra þeirra sem hafa fengið þennan styrk, bæði fyrir þá sjálfa og stofnunina. Rúmlega sjö hundruð Íslendingar hafa fengið styrki úr sjóðnum á fimmtíu ára sögu stofnunarinnar en Bandaríkjamenn sem hingað hafa komið eru um 500 talsins. Fulbright styrkurinn er fyrir fólk úr öllum greinum masters- og doktorsnáms og felast styrkirnir m.a. í peningagreiðslum.

Í tilefni þess að Fulbright stofnunin á Íslandi varð fimmtíu ára í febrúar í fyrra kom ekkja J.William Fulbright, frumkvöðuls og upphafsmanns stofnunarinnar, í heimsókn til landsins og hitti fyrir Menntamálaráðherra, styrkþega og stjórn Fulbright ásamt fleirum. Þá var ákveðið að stofna félag fyrir Fulbright styrkþega á Íslandi. Félagið gefur styrkþegum sem farið hafa í gegnum Fulbright verkefnið, tækifæri á að hittast, vinna að sameiginlegum verkefnum og halda reynslu sinni lifandi.

Fyrsti aðalfundur félagsins verður haldinn næsta haust og þeir Fulbright styrkþegar sem enn hafa ekki fengið bréf frá stofnuninni eru beðnir um að hafa samband við Láru, annað hvort í síma 552-0830 eða á netfangið alumni@fulbright.is Hægt er að hlaða niður skráningareyðublaði með því að SMELLA HÉR.

Þriðjud. 8. Jan. 2008
Hlutu styrk frá Fulbright 2008
Eftirtaldir hlutu styrk til framhaldsnáms frá Fulbright árið 2008.

Benedikt Skúlason, M.S. í Verkfræði
Berglind María Tómasdóttir, Ph.D. í Tónlist
Björn Leví Gunnarsson, Ph.D. í Tölvufræðum
Gunnar Þór Pálsson, M.S. í Verkfræði
Hörður Kristinn Heiðarsson, Ph.D. í Verkfræði
Kári Helgason, Ph.D. í Eðlisfræði
Ólafur Ari Jónsson, LL.M. í Lögfræði
Sæmundur Ari Halldórsson, Ph.D. í Jarðfræði

Mánud. 23. Júlí 2007
Hlutu styrk frá Fulbright 2007

Eftirtaldir hlutu styrk til framhaldsnáms frá Fulbright árið 2007.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, M.S. í Félagsfræði
Baldvin Kári Sveinbjörnsson, M.A. í Kvikmyndagerð
Björg Sigríður Hermannsdóttir, Ph.D. í Sálfræði
Elísabet Guðrún Björnsdóttir, M.S. í Verkfræði
Gunnar Sigurðsson, Ph.D. í Verkfræði
Gunnhildur Daðadóttir, M.A. í Tónlist
Heiða María Sigurðardóttir, B.S. í Taugavísindum
Ólafur Guðmundsson, Ph.D. í Verkfræði

Einnig voru veittir tveir fræðimannastyrkir í ár og þá hlutu:

Dr. Áslaug Geirsdóttir Jarðfræðingur
Dr. Sigríður Matthíasdóttir Sagnfræðingur


Mánud. 14. Maí 2007
Heiða María Sigurðardóttir hlýtur styrkinn “The International Fulbright Science and Technology Award for Outstanding Foreign Students”
Heiða María Sigurðardóttir hlaut styrkinn “The International Fulbright Science and Technology Award for Outstanding Foreign Students” til framhaldsnáms í taugavísindum. Er þetta í fyrsta sinn sem styrknum er úthlutað.
MEIRA >>

Mánud. 23. Apríl 2007
Fulbright 50 ára

Fulbright styrkþegar 2007 heiðraðir við hátíðlega athöfn í H.Í á 50 ára afmæli stofnunarinnar























MEIRA >>

Mánud. 26. Mars 2007
Opnunartími námsráðgjafar Fulbright stofnunarinnar

Athugið breytingar á starfsemi námsráðgjafar Fulbright stofnunarinnar. Héreftir verður opnunartími eftirfarandi:
Almennur opnunartími er mánudaga og þriðjudaga kl. 13 - 16.
Námsráðgjafi mun aðeins svara síma á almennum opnunartíma kl. 13 - 16.
Nemendur sem þurfa á aðstoð námsráðgjafa að halda geta sent tölvupóst, hringt og heimsótt bókasafnið á almennum opnunartíma, en verða að athuga að ekki getur verið um einkaviðtöl að ræða.

Fimmtud. 7. Des. 2006
Bandarískir Fulbright styrkþegar 2006-2007

Nokkrir af styrkþegum og stjórnarmönnum Fulbright, f.v: Timothy Spanos, Ólafur Guðmundsson, Nathan Green, Michael Corgan, Ragnhildur Zoega, Kate Schaefer, Robert Zierenberg, Davide Zori, Bradd Haley, Ronald Hawkins, Richard Korn.

















Eftirtaldir Bandarískir styrkþegar koma til Íslands á vegum Fulbright skólaárið 2006 - 07:
Gestakennarar:
Dr. Robert A. Zierenberg frá University of California, Davis, kennir við Jarðfræðiskor Háskóla Íslands á haustönn.
Roxi Jane Thoren frá University of Oregon kennir við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands á vorönn.
Dr. James L. Dodd frá Drake University í Iowa kennir við við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands á vorönn.

Námsmenn:
Tara Dawn Carter, fornleifafræði, Háskóli Íslands
Nathan David Green, tölvunarfræði, Háskóli Íslands
Bradd Joseph Haley, líffræði, Háskóli Ísalnds
Katherine Aamanda Schaefer, málun, sjálfstætt verkefni
Demian Asa Schane, umhverfisfræði, Háskólinn á Akureyri
Jeffrey Turco, miðaldafræði, Háskóli Íslands
Davide Marco Zori, fornleifafræði, Háskóli Íslands

Fimmtud. 14. Apríl 2005
Hundrað ár frá fæðingu Fulbrights
9. apríl síðastliðinn hefði J. W. Fulbright öldungardeildarþingmaður orðið 100 ára. J. William Fulbright var einn áhrifamesti bandaríski stjórnmálamaðurinn á 20. öldinni og átti hugmyndina að því að gerðir voru tvíhliða samningar milli Bandaríkjanna og annarra þjóða um að efla samskipti á sviði menntamála.

Hann var fæddur i Sumner, Missouri fylki. Hann lærði stjórnmálafræði í háskólanum í Arkansas og hélt síðan til Oxford í Englandi, þar sem hann nam til Meistaragráðu.

Er hann kom aftur til Bandaríkjanna lagði hann stund á lögfræði í George Washington háskólanum í Washington, D.C. Á árunum 1939 til 1941 var hann settur háskólaforseti í háskólanum í Arkansas, sá yngsti í Bandaríkjunum á þeim tíma.


MEIRA >>

Föstud. 23. Apríl 2004
Styrkþegar heiðraðir
Styrkþegar ásamt Ragnhildi Zoega, stjórnarformanni, James I. Gadsden, sendiherra og Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra
Fulbright stofnunin hélt árlega móttöku sína í Iðnó síðasta vetrardag. Ragnhildur Zoega, formaður stjórnar Fulbright stofnunarinnar bauð gesti velkomna og óskaði styrkþegum til hamingju með árangurinn, og James I. Gadsen, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi flutti ávarp. Hann talaði um m.a. um hugsjónina sem liggur að baki Fulbright starfseminni, og beindi orðum sínum jafnt til hinna nýju íslensku styrkþega, sem og til þeirra bandarísku styrkþega sem nú eru staddir á Íslandi við nám og störf. Að þessu loknu afhenti Lára Jónsdóttir, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, þeim íslensku styrkþegum sem halda munu utan til Bandaríkjanna nú í sumar og í haust, viðurkenningarskjöl í því tilefni.
MEIRA >>

Mánud. 23. Júní 2003
Fulbright afhendir styrki vegna haustins 2003
Mánudaginn 2. júní sl. var haldin árleg móttaka Fulbright-stofnunarinnar, í Iðnó í Reykajvík. Báðir heiðursformenn stjórnarinnar, þeir James I. Gadsden, sendiherra Bandaríkjanna og Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, voru viðstaddir, auk margra stjórnarmeðlima, vina og velunnara Fulbright á Íslandi, þegar framkvæmdastjóri stofnunarinnar, Lára Jónsdóttir afhenti nýjum íslenskum styrkþegum viðurkenningarskjöl vegna þessa frábæra árangurs. Þau sem hlutu námsstyrki í ár voru:
MEIRA >>

Fimmtud. 16. Jan. 2003
Virtur mannfræðingur í Íslandsheimsókn á vegum Fulbright
Rannsóknastofa í kvennafræðum, í samvinnu við mannfræðiskor Háskóla Íslands, stendur fyrir opnum rabbfundi í hádeginu í dag, fimmtudaginn 16. janúar, kl. 12-13 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesari er dr. Emily Martin, prófessor í mannfræði við New York University. Hún kynnir nýjustu rannsókn sína en þar skoðar hún hugarástand út frá mannfræðilegu sjónarhorni. Fyrirlesturinn nefnir hún "Cultures of mania: Toward an anthropology of mood" og fer hann fram á ensku.
MEIRA >>

Þriðjud. 3. Des. 2002
Íslenskir styrkþegar 2002 - 2003
styrkþegar
Í haust hófu 14 íslenskir námsmenn nám á meistara- eða doktorsstigi með Fulbright-námsstyrk í farteskinu. Einn íslenskur fræðimaður, Dr. Sigþór Pétursson, hlaut rannsóknarstyrk, en í janúar kemur hann sér fyrir við Amherst-háskóla í Massachusetts, þar sem hann mun stunda rannsóknir. Heiðrún Geirsdóttir hlaut "American Studies" styrk, til þess að sækja sumarnámskeið í bandarískum fræðum.
MEIRA >>