|
|
Saga og hugmyndafræði Fulbright  | | J. William Fulbright | J. William Fulbright (1905-1995) var einn áhrifamesti bandaríski stjórnmálamaðurinn á 20. öldinni. Hann átti hugmyndina að því að gerðir yrðu tvíhliða samningar milli Bandaríkjanna og annarra þjóða um að efla samskipti þjóðanna á sviði menntamála.
Hugmyndina fékk hann þegar bandaríska þjóðin þurfti, í lok síðari heimsstyrjaldar,
að ákveða hvað gera skyldi við vörubirgðir í eigu bandaríska hersins, sem safnast höfðu
upp í ýmsum löndum. J. William Fulbright var þá öldungardeildarþingmaður og lagði
hann til í þinginu, að í stað þess að flytja vörubirgðirnar heim til Bandaríkjanna, skyldu
þær seldar í viðkomandi landi og afraksturinn notaður til að fjármagna samskipti Bandaríkjanna
og viðkomandi lands á sviði menntamála.
MEIRA >> | Fulbright á Íslandi  | | Fulbright-samningurinn á Ís- landi undirritaður, 23.2. 1957 |
Fulbright-stofnunin á Íslandi, Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna, var stofnsett með samningi milli ríkisstjórna Íslands og Bandaríkjanna árið 1957. Stofnunin starfar með fjárveitingum beggja samningsaðila. Heiðursformenn stofnunarinnar eru menntamálaráðherra Íslands og sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi hverju sinni.
Í stjórn stofnunarinnar sitja fimm Íslendingar og fimm Bandaríkjamenn, sem eru skipaðir af menntamálaráðherra og sendiherra Bandaríkjanna. MEIRA >> |
|
|