Tenglaflokkar: |
| Leitarvélar fyrir skóla - almennt |
| Próf og prófaundirbúningur |
| Fjármögnun náms í Bandaríkjunum |
| Framhaldsháskólanám - almennt |
| Community Colleges - fyrrihlutaháskólar |
| Gæðamat á skólum (rankings) |
| Vegabréfsáritanir og annað um útlendinga í Bandaríkjunum |
| Lífið í Bandaríkjunum |
| Fulbright - samtarfsaðilar |
| Aðrir tenglar |
| |
Háskólar í stafrófsröð Listi, í stafrófsröð, yfir háskóla í BNA sem veita amk. BA/BS gráðu. |
Háskólar, raðað eftir ríkjum |
Leitarvél EducationUSA Leitarvélar Peterson's á vef EducationUSA (sem er á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins). Sömu möguleikar til leitar, færri auglýsingar. Hægt að leita að grunnnámi eftir staðsetningu, aðalfagi, kostnaði, stærð skóla, meðaleinkunnum nemenda, skólagerð, íþróttum og túarbrögðum (veljið "Undergraduate Colleges" og svo "Detailed Search"). Einnig hægt að leita að framhaldsnámi, fjarnámi, námskeiðum og ýmsu sérnámi. Ítarlegar upplýsingar um skóla og námsleiðir, auk tenginga við heimasíður skólanna. |
College Opportunities On-Line Þessa leitarvél er að finna á vef NCES, þ.e. National Center for Educational Statistics, sem er á vegum Department of Education - bandaríska menntamálaráðuneytisins. |
| |
Educational Testing Service ETS er prófafyrirtækið sem hefur umsjón með TOEFL, GRE, GMAT, og SAT auk annarra prófa. |
TOEFL Vefsvæði TOEFL prófsins. Upplýsingar, reglur, skráning á vefnum. |
GRE Vefsvæði GRE prófanna. Upplýsingar og reglur, netskráning í greinaprófin. |
GMAT Vefsvæði GMAT prófsins. Upplýsingar og reglur um prófið, og mikið magn annarra upplýsinga fyrir þá sem stefna á MBA nám. |
ACT Upplýsingar um ACTog skráning á vefnum, og margt fleira. |
ECFMG Educational Commission for Foreign Medical Graduates sér um að meta lækna sem menntaðir eru utan Bandaríkjanna, vegna umsókna um sérfræðinám í Bandaríkjunum. |
USMLE Vefsvæði United States Medical Licensing Examination - prófanna, vegna lækningaleyfis í Bandaríkjunum. |
GED utan Bandaríkjanna Utan Bandaríkjanna er hægt að taka GED prófin í tölvuvæddum prófamiðstöðvum Prometric og hér eru upplýsingar um það. Athugið að það er aldrei hægt að taka svona próf bara heima hjá sér á netinu.
|
Prófaundirbúningur á petersons.com Upplýsingar um mörg stöðluð próf, ráðleggingar um undirbúning og próftækni. Í sumum tilfellum er aðgangur að prufuprófum á vefnum. |
TOEFL undirbúningur á petersons.com Um TOEFL prófið, ráðleggingar, prufupróf á vefnum. |
GRE undirbúningur á petersons.com Um uppbyggingu og undirbúning fyrir tölvuprófið, prufupróf á netinu. |
GMAT undirbúningur á petersons.com Upplýsingar um og undirbúningur fyrir GMAT tölvuprófið, prufupróf á netinu. |
SAT undirbúningur á petersons.com Um almenna SAT prófið, undirbúningur, ráðleggingar, prufupróf á vefnum. |
Prófaundirbúningur, GRE og GMAT Hér er hægt að kaupa aðgang að undirbúningsefni á netinu. |
ETS - sértækir námsörðugleikar Reglur um tilhliðranir í prófum vegna fatlana og sértækra námsörðugleika. Upplýsingar um hvernig skal sækja um slíkar tilhliðranir og umsóknareyðublöð er hins vegar að finna á vefsíðum prófanna sjálfra. |
| |
College-Scholarships.com fjöldi tengla á ýmsar vefsíður, m.a. margar styrkjaleitarvélar, vefir um íþróttastyrki, listar af skólum af ákveðnum gerðum o.m.fl. |
Styrkjaleitarvél IIE Hægt að leita að styrkjum eftir upprunalandi, námsgrein, staðsetningu í BNA og heiti styrktaraðila. |
Lánasjóður íslenskra námsmanna Lánasjóðurinn veitir íslenskum námsmönnum (í lánshæfu námi við viðurkennda skóla) erlendis lán til framfærslu og skv. ákveðnum reglum einnig til greiðslu skólagjalda. |
Handbók um styrki Upplýsingastofa um nám erlendis, sem er á vegum Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, gefur út Handbók um styrki á vefnum. Handbókin er í stöðugri uppfærslu og er besta fáanlega samantekt á styrkjum sem eru sérstaklega ætlaðir Íslendingum til náms erlendis (ekki bara í Bandaríkjunum). |
Skólar sem bjóða erlendum nemum fjárhagsaðstoð Hér er að finna lista yfir skóla sem veita erlendum nemum einhverja fjárhagsaðstoð. Fram kemur áætlaður kostnaður við eitt skólaár, hversu margir erlendir nemar eru við skólann, hversu margir njóta einhverrar aðstoðar, og meðalupphæð þeirrar aðstoðar. Ekki er gerður greinarmunur á því hvort aðstoð er veitt til undergraduate eða graduate náms, og ekki skyldi gera ráð fyrir að þetta sé tæmandi listi. |
EduPASS - um fjármögnun Upplýsingar um fjármögnun náms í Bandaríkjunum, á vefsvæði EduPASS. |
ScholarshipExperts.com Gjaldfrjáls styrkjaleitarvél. |
FastWeb Stykjaleitarvél, án endurgjalds. Heldur áfram að senda tilkynningar um mögulega styrki með tölvupósti til þeirra sem hafa skráð sig. |
Bandarísk námslán Leiðbeiningar um fjármögnun háskólanáms frá bandaríska menntamálaráðuneytinu. Athugið, að aðeins bandarískir ríkisborgarar og þeir sem hafa grænt kort eiga kost á lánum á vegum ríkisins. |
Styrkjaleitarvél Collegeboard Styrkjaleitarvél, án endurgjalds. |
International Student Loans Námslán fyrir erlenda nema í bandarískum háskólum og víðar um heiminn. Athugið að bera vandlega saman lánskjör, það getur vel verið ódýrara/heppilegra að taka lán hjá íslenskum bönkum. Nauðsynlegt er að hafa ábyrgðarmann sem er búsettur í Bandaríkjunum og er bandarískur ríkisborgari eða með grænt kort. |
GrantsNet GrantsNet er styrkjaleitarvél, án endurgjalds, fyrir nemendur og fræðimenn í lífvísindum, oðrum raunvísindum, stærðfræði, verkfræði og tæknigreinum. Styrkir vegna grunnháskólanáms, framhaldsnáms, post-doc og rannsókna. Einnig fyrir háskólakennara í þessum greinum. |
NAFSA: Association of International Educators Upplýsingar um fjármögnun fyrir erlenda nema. |
The Foundation Center Mikið magn upplýsinga um styrki úr einkasjóðum. Einstaklingar geta leitað að styrkjum til náms, rannsókna og annarra verkefna (sjá dæmi hér). Greiða þarf fyrir áskrift mánaðarlega. Fulbright tekur enga ábyrgð á niðurstöðum leitar. |
| |
Gradview.com Ýmsar greinar um framhaldshákólanám, m.a. með persónulegum frásögnum. Fyrst og fremst ætlað bandarískum nemum, sérstaklega eru sumar prófaupplýsingarnar rangar fyrir Íslendinga. Bærileg leitarvél sem býður upp á nokkuð nákvæma flokkun, en er enganveginn tæmandi. |
National Assiciation of Graduate-Professional Students Hagsmunasamtök nema í framhaldsháskólanámi. Meðal annars er hægt að skrá sig á "list-serve" - e-mail lista fyrir erlenda nema, o.fl. |
| |
Community Colleges-USA Upplýsingar um "Community Colleges", þ.e. fyrrihluta-háskóla í Bandaríkjunum, sérstaklega framsett fyrir útlendinga. Töluvert af almennum upplýsingum, en leitarvélin er frekar takmörkuð. |
| |
Council for Higher Education Accreditation (CHEA) Council for Higher Education Accreditation (CHEA) - og the US Department of State (USDE) gefa út upplýsingar um gæði skóla eða hvort þeir eru viðurkenndir. Til þess að teljast viðurkenndur skóli þarf hann að vera Regionally Accredited í Bandaríkjunum, viðurkenndur af einni af 8 svæðisbundnum skrifstofum sem hafa leyfi CHEA og USDE til þess að sjá um að meta og viðurkenna háskóla. |
The US Department of State (USDE) Council for Higher Education Accreditation (CHEA) - og the US Department of State (USDE) gefa út upplýsingar um gæði skóla eða hvort þeir eru viðurkenndir. Til þess að teljast viðurkenndur skóli þarf hann að vera Regionally Accredited í Bandaríkjunum, viðurkenndur af einni af 8 svæðisbundnum skrifstofum sem hafa leyfi CHEA og USDE til þess að sjá um að meta og viðurkenna háskóla. |
Almennt um gæðamat Þessi síða, hjá bókasafni Illinois háskóla í Urbana-Champaign, hefur að geyma góðar upplýsingar og varnaðarorð um "rankings", eða röðun skóla, almennt . Tenglar á aðrar síður þar sem raðanir af ýmsu tagi er að finna, og tenglar á aðrar greinar um raðanir. |
Top 500 World Universities Raðanir frá Institute of Higher Education, Shanghai Jiao Tong háskóla. Líka "bestu 100 í Ameríku", "bestu 100 í Evrópu" og "bestu 100 í Asíu". |
Colleges of Distinction Góðir skólar, þekktir og minna þekktir, sem leggja mikla áherslu á gott grunnháskólanám. |
Mat nemenda á skólum sínum Gæðamat á skólum sem unnið er upp úr könnunum meðal nemenda. Margir nemendur hafa líka skrifað athugasemdir. |
| |
Bandaríska sendiráðið á Íslandi - um vegabréfsáritanir |
Destination USA: United States Visas Allt um vegabréfsártitanir til Bandaríkjanna. Á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins (U.S. Department of State). |
| |
Reiknivél fyrir uppihaldskostnað Þessi reiknivél, ein af mörgum á netinu, ber saman uppihaldskostnað milli borga í Bandaríkjunum. Veljið tvær borgir sem koma til greina, og sláið inn fjárhæðina sem þið munuð hafa úr að spila (miðað við 12 mánuði, og ekki telja með það sem fer í skólagjöld). Þeir sem hafa búið í Bandaríkjunum og þekkja uppihaldskostnað í einhverri borg geta valið hana til að hafa samanburð sem hefur meiri þýðingu. Þetta gefur góða hugmynd um hversu mis-langt námslánin hrökkva á mismunandi stöðum. |
Grunn- og framhaldsskólar Skemmtileg síða sem gerir foreldrum kleift að finna skóla eftir borgum, hverfum og fjarlægð frá tilteknu heimilisfangi. Lágmarksupplýsingar um flesta skóla, en fyrir skóla í sumum ríkjum er komnar mun meiri upplýsingar. Hægt að bera saman skóla eftir nemendafjölda, niðurstöðum úr samræmdum prófum o. fl. auk þess sem tenglar eru til staðar inn á vefsíður skólaumdæmanna og í mörgum tilfellum skólanna sjálfra. Kannski er besti kostur síðunnar fjöldi góðra greina sem útskýra flest um skóla og skólakerfið í Bandaríkjunum (mismunandi eftir ríkjum, skoðið "Complete List of Articles" fyrir það ríki sem þið hafið áhuga á). |
Rentnet Hér er hægt að leita að húsnæði út frá háskólum. Með því að smella á "(Search by) college" er hægt að slá inn nafn viðeigandi háskóla og fá lista yfir húsnæði til leigu ásamt fjarlægð frá skólanum í mílum talið. Athugið að húsnæðið sem er auglýst á vefnum er einkum í sérstökum leiguhúsnæðishverfum eða blokkum. Þá er eitt fyrirtæki sem á heilt stórhýsi eða hverfi, og sér um allt sem það varðar ("professionally managed"). Leiga er oft hærri en a "venjulegu" húsnæði í umsjón einstakra eigenda(sem reyndar eiga oftast heilu húsin, gjarna mörg hús), en öll framkvæmd getur verið öruggari. ýmsar aðrar upplýsingar eru á vefnum, svo sem ráðleggingar varðandi flutning, "neighborhood-" og "school reports", og "roommate center" fyrir þá sem vilja finna herbergi en vantar leigufélaga. Fjöldi góðra greina, ókeypis skráning nauðsynleg til að nýta alla kosti síðunnar. |
Rent.com Leit að íbúðarhúsnæði til leigu. Yfirleitt er um að ræða "professionally managed" fjölbýlishús eða leiguhúsnæðishverfi á vegum leigufyrirtækja, sem er stundum dýrara en "venjulegt" leiguhúsnæði í umsjá einstakra eigenda - en öll framkvæmd getur líka verið öruggari. Ljósmyndir og hreyfimyndir. |
Craigslist - smáauglýsingar Craigslist byrjaði í San Francisco, en inniheldur nú smáuglýsingar og tilkynningar aðallega frá einstaklingum, víðsvegar um Bandaríkin og utan þeirra. M.a. húsnæði til leigu og sölu, atvinnuauglýsingar, til sölu/óskast keypt/gefins, þjónusta, einkamál o.fl. |
| |
Institute of International Education IIE sér um framkvæmd á nemendaskiptum Fulbright í Bandaríkjunum. |
Council for International Exchange of Scholars CIES sér um fræðimannaskipti Fulbright í Bandaríkjunum. |
Bandaríska utanríkisráðuneytið
|
Skrifstofa mennta og menningar í bandaríska utanríkisráðuneytinu Þessi skrifstofa hefur yfirumsjón með málefnum Fulbright í Bandaríkjunum, auk annara menntamála sem varða alþjóðleg samskipta á sviði mennta og menningar. |
| |
Fulbright Community on State Alumni Fulbright Community on State Alumni samtök hafa verið stofnuð en tilgangurinn er að þjóna nærri 300,000 fyrrum Fulbright styrkþegum um allan heim. Þar geta þeir deilt fréttum, myndum, skipst á hugmyndum, rannsóknargreinum, auglýst eða fundið styrki eða störf. Til þess að stofna aðgang á nýjan net póst í gegnum samtökin er hægt að fara á netslóðina: https://alumni.state.gov eða smella hér að ofan á Fulbright Community on State Alumni.
|