Þessi hluti vefsíðunnar er aðallega ætlaður námsmönnum er hyggja á grunn-og framhaldsnám í Bandaríkjunum. Fræðimönnum er bent á að skoða síðuna - til rannsókna í Bandaríkjunum.
Stofnunin veitir Fulbright námsstyrki til framhaldsnáms í Bandaríkjunum en styrkirnir eru auglýstir á haustin.
Með því að smella á viðeigandi flipa til vinstri á síðunni getur þú fengið upplýsingar um námsmöguleika í Bandaríkjunum, leitarvélar fyrir skóla, upplýsingar um inntökupróf og fleira sem viðkemur námi.
Á sérhæfðu bókasafni stofnunarinnar er að finna uppflettirit um nám í Bandaríkjunum, bæklinga frá skólum, undirbúningsbækur vegna staðlaðra inntökuprófa sem eru lánaðar gegn tryggingarfé ofl.
Frekari upplýsingar má finna hér til vinstri á síðunni.
Tengt efni