Rannsóknarstyrkur
Fulbright stofnunin veitir árlega íslenskum fræðimanni 8.000 USD rannsóknarstyrk. Skilyrðið er að viðkomandi fræðimaður hyggi á a.m.k. einnar annar rannsóknardvalar við bandaríska háskólastofnun. Styrkurinn er laus til umsóknar á haustin.
New Century Scholar
New Century Scholars Program er eins árs verkefni þar sem u.þ.b. 30 vísinda- og fræðimenn hvaðanæva að úr heiminum vinna, bæði saman og á einstaklingsgrundvelli, að rannsóknum tengdum ákveðnu þema. Á hverju ári, fjallar hópurinn um ákveðið þema. Allir þátttakendur koma saman þrisvar á tímabilinu á nokkurra daga fundum. Að auki er þriggja mánaða rannsóknardvöl í Bandaríkjunum hluti af verkefninu. Umsóknarfrestur er auglýstur á vef New Century Scholars.
Frekari upplýsingar má finna hér t. v. á síðunni.