Hafðu samband

Nafn
Netfang
Skilaboð
 

Fulbright stofnunin er lokuð mánudaga og opin til kl 13 föstudaga

Tímabundinn opnunartími Fulbright stofnunarinnar.

Kynningar í Verslunarskóla Íslands á háskólanámi í Bandaríkjunum

Tveir fyrirlestrar um grunnháskólanám í Bandaríkjunum

Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi

Mánudaginn 30. janúar 2012. kl 17

Fulbright stofnunin býður bandaríska styrkþega velkomna til Íslands

Bandarískir gestaprófessorar á Íslandi í boði Fulbright

Athyglisverð sýning tveggja bandarískra fyrrverandi Fulbright styrkþega

Amy Revier og Elizabeth Tubergen halda saman sýningu.

Þakkargjörðarhátíð FFSÍ á Nítjánda - myndir

Þakkargjörðarhátíð 2. desember 2011.

Fyrrverandi Fulbright styrkþegi sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands

Marianne E. Kalinke er prófessor emerita við Illinoisháskóla í Urbana og Champaign

Íslenskur Fulbright styrkþegi í North Dakota

Harpa Lind Jónsdóttir, Fulbright styrkþegi er í doktorsnámi í klínískri sálfræði við University of North Dakota.

Íslenskur Fulbright styrkþegi í Chicago

Rannveig Sigurvinsdóttir, íslenskur Fulbright styrkþegi, stundar nám í Chicago

Esjuganga Fulbright stofnunarinnar

Laugardaginn 22. október 2011 fór Fulbright stofnunin í Esjugöngu

Geirþrúður Guðjónsdóttir, Fulbright styrkþegi 2011, í Gateway ferð í Miami

Gateway ferðin til Miami var alveg einstök reynsla.

Fulbright stofnunin á Alþjóðadögum Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands

Fulbright stofnunin tók þátt í Alþjóðadögum Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands 6. og 12. október 2011.

Fulbright styrkþegi frá Pratt Institute, New York í kennslu við LHÍ

Fulbright styrkþeginn Aileen Wilson, prófessor í lista-og hönnunarkennslu við Pratt Institute, Brooklyn, New York

Fyrirlestur Dr. Magnúsar Tuma Guðmundssonar

Fyrsti fyrirlestur haustsins í boði Fulbright Alumni félagsins fór fram 11. október 2011.

First talk in Alumni series Tuesday, 11th October 2011

Talk by Fulbright alumnus Dr. Magnús Tumi Guðmundsson on Tuesday 11th October 2011 at 12:15.

Fulbright á Alþjóðadegi Háskólans í Reykjavík í dag, 6. október 2011, 11:30-13:30

Fulbright stofnunin tekur þátt í Alþjóðadegi Háskólans í Reykjavík

Framkvæmdastjóri Fulbright heimsækir háskóla á landsbyggðinni

Framkvæmdastjóri Fulbright, Belinda Theriault, heimsótti nýverið háskóla á landsbyggðinni, Háskólann á Hólum, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.

Bandarískir Fulbright styrkþegar á Íslandi

Sex bandarískir Fulbright styrkþegar dvelja í vetur á Íslandi við nám, rannsóknir og listsköpun. Hópurinn kom saman hjá Fulbright stofnuninni 16. September s.l og fékk kynningu á Íslandi og íslensku samfélagi.

Opnunartími

Opið á þriðjudögum frá 10-12 og 13-16 á fimmtudögum frá 13-16.

Opnunartími í ágúst

Opnunartíma ráðgjafarmiðstöðvar/bókasafns hefur verið breytt í ágúst.

Fulbright styrkþegar árið 2011

Í ár hlutu sjö Íslendingar Fulbright styrki til Bandaríkjanna, fimm til framhaldsnáms og hlutu tveir íslenskir fræðimenn styrki til rannsóknardvalar fyrir komandi skólaár.

Cobb Partnership verðlaunin

Bert Hanson stofnaði fyrirtækið Íslensk Ameríska þann 15. april 1964 og hefur fyrirtækið alla tíð verið í eigu fjölskyldunnar. Bert flutti til landsins ásamt eiginkonu sinni Ragnheiði Jónasdóttur árið 1963. Verðlaunin eru veitt þeim Bandaríkjamanni sem hefur unnið farsællega að samskiptum Íslands og Bandaríkjanna og styrkt tengslin milli landanna, hvort sem er á sviði menningar, mennta eða atvinnulífs.

Áhrif loftslagsbreytinga á heimskautagróðurfar

Martha Reynolds, Fulbrigh fræðimaður hélt fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri, um áhrif loftslagsbreytinga á heimskautagróðurfar.

Know Your Place - Nicole Pietrantoni

Know Your Place - er einkasýning listakonunnar Nicole Pietrantoni en hún er Fulbrighstyrkþegi og hefur unnið á undaförnum mánuðum á Íslandi á vinnustofu Íslenskrar grafíkur. Sýningin er öllum opin.

Nýr framkvæmdastjóri

Belinda Theriault hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Fulbright stofnunarinnar á Íslandi frá mars 2011.

Cobb Partnership verðlaunin 2011

Cobb Partnership verðlaunin eru veitt Bandaríkjamanni sem hefur unnið farsællega að samskiptum Íslands og Bandaríkjanna.

The Fulbright Science and Technology Award

Fulbright stofnunin óskar eftir umsóknum um námsstyrk til þess að hefja doktorsnám í vísinda- og tæknigreinum haustið 2012. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 29. apríl kl 16.00, 2012. Skilyrði fyrir umsókn er að námsmaður hafi lokið Bachelor- eða grunnnámi fyrir 1. ágúst 2012 en nemandi fer beint í doktorsnám eftir grunnnám eins og algengt er í Bandaríkjunum. Fulbright stofnunin á Íslandi mun tilnefna þrjá íslenska námsmenn til að hljóta styrkinn.

Geisladiskur Dr. Kristínu Jónínu Taylor píanóleikara

Út er kominn geisladiskur með einleiksverkum á píanó eftir Þorkel Sigurbjörnsson í flutningi Dr. Krístínu Jónínu Taylor píanóleikara. Kristín hlaut Fulbright námsstyrk til Íslands skólaárið 2004-2005 vegna rannsókna tengdum píanókonsert Jóns Nordals. Hún hlaut annan Fulbright Scholar styrk til Íslands haustið 2010 til rannsókna á tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar.

Nathan Hall á hádegistónleikum

Nathan Hall leikur píanóverk á stuttum hádegistónleikum í Listasafni Íslands alla miðvikudaga næstkomandi vikur.

Frétt á Dipnote

Eftirfarandi frétt birtist á Dipnote sem er bloggsíða bandaríska untanríkisráðuneytisins þar sem segir frá velheppnuðum fjáröflunarkvöldverði Félags Fulbright Styrkþega á Íslandi en fréttin var skoðuð 27.000 sinnum! Fréttina skrifaði Laura Gritz, sem er Public Affairs Officer hjá bandaríska sendiráðinu á Íslandi. Greinin birtist hér á ensku.

Þakkargjörðarhátíð á Hótel Nordica

Þakkargjörðarhátíð félags Fulbright styrkþega var haldin á Hótel Nordica laugardaginn 13. nóvember síðastliðinn. Boðið var upp á glæsilegan þriggja rétta matseðil í anda “Thanksgiving” í Bandaríkjunum. Margir mættu og létu með því gott af sér leiða því allur ágóði rennur í nýjan námsstyrk sem Alumni félagið sér um.

Thanksgiving Félags Fulbright á Hótel Hilton

Þakkargjörðarhátíð Félags Fulbright styrkþega þann 13. nóv. nk. á Hótel Hilton Félag Fulbright styrkþega hefur hafið hauststarfsemi sína af krafti. Efst á baugi er fjáröflunarkvöldverður í tilefni af Þakkargjörðarhátíðinni (Thanksgiving), sem við munum öll eftir frá dvöl okkar í Bandaríkjunum. Hátíðin verður haldin á Hótel Hilton 13. Nóvember, hefst kl. 19 og hvetjum við ykkur öll til að taka það kvöld frá og mæta. Miðapantanir eru teknar með því að senda netpóst á .(JavaScript must be enabled to view this email address)

Fulbright stofnunin á Alþjóðadegi Háskóla Íslands

Alþjóðadagur Háskóla Íslands verður haldinn í dag, 14. október 2010, á Háskólatorgi þar sem Fulbright stofnunin verður með kynningarbás.

Styrkþegar 2010

Fulbright stofnunin styrkir sex íslenska námsmenn til framhaldsnáms í Bandaríkjunum og fjóra fræðimenn sem hlutu styrk til rannsókna í þar í landi. Sjö Bandarískir námsmenn hlutu styrk frá Fulbright og þrír bandarískir fræðimenn.

Vorferð félags Fulbright styrkþega

Félag Fulbright styrkþega bauð bandarísku styrkþegunum í ferð um landið.

Febrúarferð með Félagi Fulbright styrkþega

Félag Fulbright styrkþega á Íslandi bauð bandarísku styrkþegunum sem eru hér í ár í ferðalag um Suðurlandið.