Þakkargjörðarhátíð Félags Fulbright styrkþega á Íslandi (FFSÍ) var haldin á veitingarstaðnum Nítjánda í Turninum Kópavogi föstudaginn 2. desember 2011. Hátíðin heppnaðist í alla staði vel enda matur og skemmtiatriði til fyrirmyndar. Skemmtilegt uppboð á ýmsum vörum og þjónustu var haldið til að styrktar námsmannastyrktarsjóði FFSÍ. Bæði fyrrverandi og núverandi Fulbright styrkþegar fjölmenntu auk annarra velunnarra Fulbright. Myndirnar tala sínu máli.